Auglýsing

Um okkur

Viđ heitum Hildur Edda og Íris Ósk og viđ erum í íţróttafrćđinámi á Laugarvatni. Ţessi síđa var búin til í tengslum viđ vettvangsnám okkar í Lćkjarskóla í Hafnarfirđi.
Hér ćtlum viđ ađ segja frá ţví sem viđ erum ađ bralla og allt sem tengist kennslunni, skólanum og öđrum ţáttum sem tengjast kennarastarfinu.
Smelliđ á linkana og ţiđ fáiđ allar upplýsingar um námiđ.

Miđvikudagur 31. október

31. október 2007 klukkan 12:56

Síðasti dagur vettvangsnámsins hefur verið með svolítið ólíkum hætti en hinir "venjulegu" kennsludagar. Bæði í gær og í fyrradag var vetrarfrí í Lækjarskóla og því engin kennsla, og í dag er skipulagsdagur kennara og þar af leiðandi engir nemendur í skólanum en samt sem áður nóg um að vera.
Strax kl. 8 í morgun mættum við á kennarafund og voru þar ýmis málefni rædd og það sem er á döfinni næstu vikurnar. Fórum svo strax í kjölfarið á fund hjá kennurum í 5.-7. bekk, en þar var aðallega verið að skipuleggja afmælisdag skólans sem haldinn verður hátíðlegur þann 15. nóvember nk. Í hádeginu var svo boðið upp á pizzu sem sumir gæddu sér á en aðrir voru með nesti, þurfum ekki að nefna nein nöfn Hlæjandi

Restin af deginum fer í skipulag og annan undirbúning hjá kennurunum hér í Lækjarskóla en við kennaranemarnir verðum eitthvað fram eftir degi hér í skólanum og ætlum að klára það sem við eigum eftir að klára í sambandi við vettvangsnámið okkar, s.s. ýmis viðtöl og fleira. Ætlum einnig að klára  þá upplýsingasöfnun sem snýr að heimasíðu vettvangsnámsins. Kennarar skólans eru viðveruskyldir ákveðið lengi á skipulagsdegi sem þessum og þar sem við erum kennaranemar þá fylgjum við því eins og okkur ber skylda til.

Föstudagur 26. október

26. október 2007 klukkan 22:37

Vettvangsnámi okkar er hér með óformlega lokið, allavega er kennslunni lokið. Við vorum með hressa 1-3 bekkingar í byrjun dags og ákváðum við að hafa stöðvaþjálfunar hringd og tókst það bara nokkuð vel og voru krakkarnir sáttir. Voru ekki mikið fyrir að vera á réttum stöðum á sinni stöð enda mun skemmtilegra að staulast um á stultum og húlla út um allan sal heldur en á einum stað, auðvitað. Þar sem að það voru tveir fyrstu bekkir sem komu í röð þá ákváðum við að kenna þeim ein og ein, til að öðlast reynslu þar líka. Eftir þessa fjóra tíma komu síðan fjölnámsdeildin í sund og var mun meiri mæting í þennan tíma heldur en í þennan fyrir viku. Erum sammála um það að við hljótum að vera það skemmtilegar og hressar að þessir tveir einstaklingar ákváðu að ljáta sjá sig ;) Þar var farið í skriðsund og aðeins í björgunarsund en erfitt er að halda úti heilum tíma með tvem nemendum, þar sem annar hafði verið að æfa sund. Eftir sundið komu svo sérdeildarkrakkarnir til okkar og vorum við með þol. Þar áttuðum við okkur á því að þau voru ekki alveg að geta þessar æfingar sem að við vorum með og því enduðum við það fljótlega og vorum með skotbolta, sem gekk að sjálfsögðu mun betur.  Eftir mat kom síðan 6 bekkur og tók hann vel á í þolinu, í lokin var svo stuttur fótbolti og voru þrjú lið og eitt lið var í teygjum á meðan.

Góður dagur sem að tókst vel og erum við nokkuð sáttar með hann.

VETRARFRÍ tekur nú við og er frí á mánudag og þriðjudag, síðan er skipulagsdagur á miðvikudaginn og er búist við fundarmennsku og fleiru skemmtilegu og síðan er aldrei að vita nema við gerum allveg fullt við þetta blogg þá. Erum annars búnar að vera duglegar að henda inn myndum og fleiri upplýsingum um skólann.

Góða helgi sem fer í anatomy-lestur :D

Fimmtudagur 25. október

25. október 2007 klukkan 14:37

Jæja þá er næstsíðasti dagurinn okkar í kennslu búinn. Íþróttakennslan var með heldur öðru sniði en venjulega daga. Kenndum fyrstu kennslustundina en svo eftir hana komu tveir rithöfundar og voru með fyrirlestur í íþróttasalnum. Þar af leiðandi "féll" hin eiginlega íþróttakennsla í sal niður og kenndum við bekkjunum bara í sínum heimastofum. Þar gerðum við ýmislegt, í einum bekknum leyfðu við krökkunum að sýna það sem þau vildu og völdu þau ýmist á milli þess að t.d. spila á hljóðfæri, vera með uppistand og svo voru nokkur með stutta leikþætti sem komu virkilega á óvart. Í öðrum bekknum vorum við með frjálst og fórum svo í einn leik sem krakkarnir kenndu okkur og hann var mjög sniðugur. Þegar íþróttasalurinn var aftur laus þá kenndum við það sem eftir var af deginum, og vorum ýmist með leikjatíma, snertibolta, skotbolta og eða eitthvað annað skemmtilegt.
Í lok dagsins var svo 10. bekkur í íþróttavali og þá vorum við auðvitað með kennslu, en leyfðum þeim jafnframt að koma með tillögur og ráða að svolitlu leyti sjálf hvað þau vildu gera. Í þessu íþróttavali er reynt að gera það sem þau vilja og hafa áhuga á að gera.
Seinasti dagurinn okkar í hinni eiginlegu kennslu er svo á morgun en á mánudag og þriðjudag er vetrarfrí bæði hjá nemendum og kennurum svo það er lítil kennsla fyrir okkur þá.

Miđvikudagur 24. október

24. október 2007 klukkan 13:30

Þessi morgun byrjaði svolítið öðruvísi en aðrir morgnar. Því er nefnilega þannig háttað í þessum skóla að í 8., 9. og 10. bekk er stelpum og strákum kennt í sitt hvoru lagi. Við mættum semsagt upp í Bjarkarhús þar sem stelpunum er kennt. Þar eru reyndar allt aðrar kennsluaðstæður heldur en hérna í íþróttahúsinu við Lækjarskóla en samt sem áður góður íþróttasalur sem og fimleikaaðstaða, sem er víst mjög vinsæl hjá stelpunum. Þarna kenndum við rúmlega 30 stelpum í 8. bekk körfubolta sem gekk ótrúlega vel miðað við aðstæður og kom okkur virkilega á óvart að nánast allar voru vel virkar allan tíman.
Eftir frímínútur tóku síðan við ansi krefjandi hópar, 9. og 10. bekkur strákar og þá alltaf tveir bekkir saman. Við byrjuðum á 9. bekknum og strax í kjölfarið kom 10. bekkurinn. Vorum með báða hópana í blaki og þreki til að ekki væri metingur á milli bekkjanna. Eins og í flestum skólum er þessi aldur erfiðastur og við vorum svolítið stressaðar svona í byrjun tímans, stælar í strákunum o.s.frv. En báðir tímarnir gengu bara vel og við fórum allavega sáttar út, búnar að þræla þeim út í þrekinu og láta þá spila alvöru blak.
Á miðvikudögum er aldrei kennsla eftir hádegi þar sem það eru kennarfundir og þess háttar frá hádegi og til kl. 16. Þess vegna ákváðum við að nota bara restina af deginum í allskonar skipulag, ritvinnslu, viðtöl o.fl. Munum svo setja afrakstur þeirrar vinnu inn á bloggið í ýmsum myndum, t.d. alls konar upplýsingar um skólann og þ.h.

Mætum svo hressar í kennslu í fyrramálið sem verður með óhefðbundum hætti þar sem íþróttahúsið verður upptekið frá 8:00-11:00.

Ţriđjudagur 23 okt

23. október 2007 klukkan 15:08
Mættum sprækar kl 8 í morgunn og vorum með 5. bekk í körfubolta sem að gekk bara vel að okkar mati og Arnþórs mati líka. Síðan tók við 1. bekkur og fórum við í spilaleikeinn og voru krakkarnir mjög sátt með það, svona þegar þau skildu nákvæmlega hvað var í gangi og gjafmildi þeirra á milli hópar var einnig mikil ;) Þriðji bekkur fylgdi í kjölfarið með æsispennandi brennó-leik.
Þá fórum við að horfa á sundtíma hjá sérdeild í 1-6. bekkur og síðan kenndum við 8. bekk sérdeild og voru þau þrjú sem mættu og við gerðum okkar besta og enduðum á nokkuð góðum tíma. Við vorum búnar að búa til tímaseðil en með þrjá nemendur gekk það skipulag ekki upp. Þá tók við pása sem að við notuðum í skipulag og tímaseðlagerð.
Um 14:00 þá kom fjölnámsdeildin 9-10 bekkur og mættu þar fjögur eldhress ungmenni sem sett voru í hendur Hildar sem notfærði sér Boot-camp þekkingu sína ;)
Skóladeginum er lokið núna kl 15:00 og við tekur skipulag og fleiri tímaseðlar.
Eins og alltaf, næstum alltaf, erum við sáttar með daginn og hvernig hann fór miðað við óvæntar uppákomur og mætingu nemenda ;)

Kv. úr Hafnarfirðinum.

Mánudagur 22. okt

22. október 2007 klukkan 13:36
Jæja þá er strax komið hádegi á mánudegi, ekkert smá hratt sem þetta líður. Kennslan gengur fínt og við erum búnar að vera að kenna bæði 1. bekk og 7. bekk í morgun. Mjög misjafnt eftir bekkjum hvernig gengur, en það gengur auðvitað alltaf að lokum. Arnþór íþróttakennari er mjög duglegur að bæði hjálpa okkur og gefa okkur athugasemdir og ráðleggingar. Erum allavega búnar að læra helling af honum sem er mjög gott mál. Það er þá vonandi að maður kenni athugasemdalaust síðustu tímana í vikunni. En núna kl. 14 tekur svo við ennþá meiri kennsla en það heilsdagsskólinn sem kemur hingað í íþróttir. Það er 2. - 4. bekkur sem við kennum þá og ætlum að setja upp hringþjálfun, sem virkar oftast mjög vel á þennan aldur.

Dagur tvö

21. október 2007 klukkan 16:48

Loksins kemur færslan sem átti að koma á föstudaginn, við erum svo uppteknar sjáið til ;) Við vorum mættar stundvíslega kl 7:50 í Lækjarskóla á föstudaginn og byrjuðum á að setja upp hringþjálfunarbraut þar sem að við vorum að fara að kenna 1-3 bekk, næstu 4 tímana. Það gekk nú alveg þokkalega vel hjá okkur, þrátt fyrir að breytingar væru gerðar á skipulagi og nýjar hugmyndir duttu inn í samræmi við athugasemdir frá Arnþóri. Eftir þessa fjóra tíma átti fjölnámsdeild skólans að vera í sundi og ekki var mikil mæting þar, og datt sá tími út, eigum eftir að henda inn upplýsingum um skólann og þá kemur útskýring á fjölnámsdeildinni.

Þar sem að við sátum ekki auðum höndum í þessari pásu sem að við fengum þarna og notuðum við tímann til að laga tímaseðil næstu tíma til, þar tók til 5-7 bekkur sérdeild og eftir matarhlé var það 6 bekkur og ákváðum við að hafa körfubolta!!! :)

Skemmtileg áskorun að taka og kenna sérdeildinni en hún tókst alveg nokkuð vel og voru krakkarnir sáttir í lok tímans. Er það ekki annars málið ;)

Síðan var matur og þá hvarf Hildur á braut og skildi mig eina eftir, ekki þýðir að svekkja sig mikið á því og ég varð því bara að gjörusvo vel og kenna 6 bekknum ein. Arnþór var að tala um að þessi bekkur væri ekki sá auðveldasti en mér tókst nú samt að redda mér og vorum við nokkuð sátt með tímann svona í lokin :D

Mánudagurinn er síðan nokkuð rólegur samkvæmt töflu en við sitjum ekki auðum höndum heldur finnum okkur eitthvað gáfulegt að gera...

Annars segi ég bara góða helgi, sem er reyndar liðin, vona bara að hún hafi þá verið góð. Við heyrumst eftir helgi ;)

Kv. Íris Ósk

Vettvangsnámiđ formlega hafiđ!

18. október 2007 klukkan 11:42
Jæja þá erum við mættar í Lækjarskóla í Hafnarfirði og framundan er u.þ.b. tveggja vikna vettvangsnám. Öll aðstaða hér er til fyrirmyndar, enda tækjabúnaður og annað í toppstandi. Skólinn er í nýlegri byggingu og er íþróttahúsið þar við hliðina á. Í íþróttahúsinu er íþróttasalur og innisundlaug, sem er frábært. Arnþór, vettvangskennarinn okkar, er mestmegnis að kenna allar íþróttir í skólanum og svo eru það tvær aðrar sem sjá um sundkennsluna og einnig er önnur þeirra að kenna eitthvað með Arnþóri.
Morguinn byrjaði frekar rólega enda við báðar, sem og Arnþór, sammála um að við myndum fylgjast með nokkrum tímum til að sjá hvernig hann er með íþróttakennsluna uppbyggða. Fyrir utan það að við erum ekki í sama skóla og þar sem við vorum í vettvangsnámi á 2. misseri og þekkjum þar af leiðandi ekki aðstæður eins vel og ef við hefðum farið aftur í sama skólann.
En við byrjuðum strax kl. 8:00 og fylgdumst með kennslu, fórum svo með Arnþóri í kennslustofu þar sem hann átti að leysa af 2.bekk vegna forfalla. Fengum þar smá sýnishorn af almennri kennslu sem var mjög fínt. Tókum okkur smá tíma í að kynna okkur skólabygginguna og hittum skólastjórnendur og fleira. Erum svo búnar að vera að skipuleggja næstu daga sem verða vonandi krefjandi en skemmtilegir.
Núna er hins vegar að byrja kennsla hjá 6. bekk sem við ætlum að taka þátt í og svo eftir hádegi er Arnþór með 10. bekkinn í íþróttafræði-valgrein og ætlum við einnig að vera með honum í því.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...